Saturday, January 26, 2008

Allt um ekkert


Þá er skólinn komin á fulla ferð aftur eftir jólafrí og allt á fullu í lærdómnum. Ekki mikið búið að gerast hérna í Köben síðan ég kom aftur, eiginlega bara týpiskur janúar sem er lengsti og leiðinlegasti mánuður ársins eða mér finnst það allavegna. Reyndar er veðrið hérna búið að vera ótrulega gott, enginn snjór ekki rigning bara blíða og svona 6-7 sitiga hiti sem er alveg ótrúlega fínt. Dagarnir líða bara einhvernvegin áfram án þess að nokkuð sérstakt gerist. Skólinn verður massífur eins og seinasta önn en núna verður meira af verkefnum og kynningum. Okkur var skipt í hópa og sem betur fer lenti ég í frábærum hóp, allt Danir nema ég nátturlega og þar af tveir sem eru frekar mikið klárir sem er gott mál því prófisorinn í þessu fagi er mjög strangur er sjálfur með doktorsgráðu frá Harvard svo kröfurnar eru ekki litlar hjá honum. Allavegna búin að skila inn einu verkefni og þá er bara að bíða og sjá hvort það falli í kramið.
Annars eyddi ég deginu í dag í bæjarferð, kíkti "aðeins" á útsölur og endað með að koma heim með 6 poka af dóti.... þetta var bara of freistandi :) Alltaf gaman að eyða smá peningum og versla, allavegna reddaði það helginni minni.
Ég er mikið að velta fyrir mér að fara í eitthvað gym, langar að byrja að hreyfa mig aftur. Búin að sjá fullt af áhugaverðum námskeiðum eins og Afró dans og Pilates en er hálf smeyk við að skrá mig þar sem danskan er ekki alveg komin hjá mér. Sé mig alveg í anda í trylltum afró dansi svo ekki í takt við hina og alltaf að gera tómt rugl því ég skil ekki leiðbeiningarnar, frekar neyðalegt, spurning að þora eða skella sér bara í ræktina.
Well farin að horfa á DVD keypti mér 6 myndir í dag svo nóg er af taka að horfa á.

2 comments:

Anonymous said...

Ji hvað mig langar að kaupa mér föt. Maður verður að gera eitthvað til að gleðja sig. Langar að sjá allt sem þú keyptir. Taktu nú mynd af hverri flík og sendu mér :)
Ég er farin að fara aftur í ræktina þó ég sé með bullandi samviskubit og finnst ég eigi að vera að læra 24/7. Maður verður aðeins að hugsa um heilsuna/geðheilsuna líka. Auk þess eru gallabuxurnar mínar orðnar of litlar sem er ekki gott mál. Tóta Ed

Anonymous said...

Þú ert öll í 6inu ;) sex pokar af fötum og 6 dvd. Ég held þú myndir vera fín í Afró og það er bara skemmtilegra fyrir hina ef þú skilur ekki allt hehe. Annars er ég ánægð með þig og þennan verslunargín, bjargar alveg geðheilsunni :)
Kv. Guðrún